Hæhæ (lykilorðið að myndunum er miðnafnið mitt)
Núna er mamma búin að setja inn myndir fyrir allt árið 2008


Smá um mig og mína
Ég heiti Hrafnkell Myrkvi og ég er þriggja ára strákur sem býr með mömmu sinni og pabba í Danmörku. Ég á fullt af góðu fólki heima á Íslandi sem ég sakna mikið. Við búum í Solbakken kollegíinu í Køben. Ég er ofsalega duglegur og hjálpsamur, svolítið forvitinn og stundum heldur framtakssamur. Ég elska að syngja og dansa og mamma og pabbi segja að ég verði örugglega skemmtikraftur þegar ég verð stór.

Ég kom í heiminn klukkan 17:31 þann 6. september 2005 á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þar sem að það voru svo margir að koma í heiminn á Akureyri á sama tíma þá fæddist ég bara inná venjulegri stofu en ekki á fæðingarstofu.

Ég er bláeygður og ljóshærður, einsog alvöru íslenskur víkingur!


Þið getið kíkt á bullið hennar mömmu www.123.is/eddaros ef þið viljið ;)




Ég er aðeins búinn að stækka síðan ég fæddist :)
Ég er meyja

Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.
Þú ert gestur nr. 44726